Netumferðarskólinn

Virkni - líðan - jafnvægi - skjátími

Stjarna 1 – Svefn, hrós, samvera, hreyfing, lærdómur og sköpun

Skráðu niður í eina viku hvað þú eyðir mörgum klukkustundum í hverjum flokki. Dragðu síðan línu milli punktanna. Hvað færðu stóra stjörnu? Er stjarnan skökk? Mætti gera betur í einhverjum flokki?

Svefninn er meðaltal yfir vikuna en hinir flokkarnir í stjörnunni eru heildar klukkustundir yfir vikuna sem verkefnið er unnið.

Svefn: Hvað sefur þú lengi á hverjum degi (0-10 klst)? Reynum að ná góðum svefni og sleppa skjátíma rétt fyrir svefn.

Hrós: Hvað hrósar þú oft öðrum? Reyndu að hrósa einu sinni á hverjum degi í heila viku. Skrifaðu hrósið í dálkinn við hliðina á stjörnunni.

Samvera: Hversu mikinn tíma á dag notar þú í að vera með vinum og/eða fjölskyldu?

Hreyfing: Hversu mikinn tíma notar þú í að hreyfa þig á hverjum degi? Öll hreyfing telur. Dæmi: Æfingar, skólaíþróttir, frímínútur, leikir o.fl.

Lærdómur og sköpun: Hversu mikinn tíma á dag notar þú í lærdóm og sköpun utan skóla? Dæmi: Lestur, listir, tónlist, teikning, skák o.fl. Hvað gerðir þú? Skrifaðu það í hinn dálkinn við stjörnuna.

Stjarna 2 – Gleði, hugarró, hvíld, þakklæti og orka

Þessa stjörnu er gott að merkja inní bæði í upphafi vikunnar sem verkefnið er unnið og síðan aftur eftir hana. Mætti nota sitthvorn litinn til að tengja saman punktana. Allir flokkar eru á skalanum 0-6.

Gleði: Ég er glaður/glöð/glatt og í góðu skapi

Hugarró: Ég hef verið róleg/ur/t og afslappaður/aflsöppuð/afslappað

Hvíld: Ég vakna hress og úthvíld/ur/t

Þakklæti: Daglegt líf mitt hefur verið áhugavert

Orka: Ég hef verið full/ur/t orku yfir daginn

Skjárinn og börnin

Það er fyrst og fremst á ábyrgð foreldra hversu mikil skjánotkun er á heimilinu. Skjátími getur haft neikvæð áhrif þegar hann kemur í stað jákvæðrar virkni, svo sem félagslegra samskipta, hreyfingar, nægilegs svefns og heilbrigðs lífernis. Foreldrar þurfa því að leitast við að skapa jafnvægi í lífi barna sinna og skipuleggja skjálausar stundir saman.

Foreldrar/forráðamenn eru fyrirmyndir barna sinna og mikilvægt að þau hugi að eigin skjánotkun þegar þau setja reglur um skjánotkun barna sinna.